Ráðstefnur- Læknaritarar
Frá formanni
Ákveðið hefur verið að blása til félagsfundar þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 20.00 á Grettisgötunni. Yfirskrift fundarins er "Breytingar á Landspítalanum".
Vonast er eftir góðri þátttöku og góðum umræðum.
Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?
Samtök atvinnulífsins efna til fundar um heilbrigðismál og skipulag heilbrigðiskerfisins, fimmtudaginn 18. mars, á Hótel Nordica í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnanna og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?
Fundurinn hefst kl. 8:30 (í sal HÍ) og verður lokið kl. 10:00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku.











