Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið - Læknaritarar

Á vettvangi – Hlutverk og hæfni læknaritara

Fræðslusetrið Starfsmennt heldur námslotuna Hlutverk og hæfni læknaritara.
Námið skiptist í þrjá hluta, Þróun starfa og símenntun, Hlutverk og hæfni læknaritara og Kynningu á námsráðgjöf og áhugasviðsgreiningu.
Fjallað verður um mikilvægi starfsþróunar og rýnt í þá hæfnisþætti sem einkennir starf læknaritara og þátttakendur taka áhugasviðsgreiningu og fá síðan túlkun á niðurstöðum hjá náms- og starfsráðgjafa.
Kennt verður miðvikudaginn 16. nóv., fimmtudaginn 17. nóv. og miðvikudaginn 23. nóv. frá kl. 13-16 alla dagana. Kennt verður í Ofanleiti 2, 5. hæð. Ath. ný staðsetning.
Umsjón með námskeiðinu hafa Árný Elíasdóttir og Guðrún Sederholm.
Nánari upplýsingar og skráning HÉR.

Á vettvangi - Trúnaður og miðlun upplýsinga

Fræðslusetrið Starfsmennt heldur námslotuna Trúnaður og miðlun upplýsinga fyrir læknaritara í samvinnu við Endurmenntun HÍ. SÍÐUSTU SKRÁNINGARDAGAR!

Gagnavinnsla SPSS fyrir læknaritara

Fræðslusetrið Starfsmennt heldur námskeiðið Gagnavinnsla SPSS, fyrir læknaritara í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands í Reykjavík og í samvinnu við Háskólann á Akureyri.

Fjarkennsla.com

Fjarkennsla.com býður upp á ýmis námskeið í fjarnámi í september og október.

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English