Fjarnám
Hér á eftir fylgir úrdráttur úr fyrirlestri sem undirrituð hélt á haustþingi Félags íslenskra læknaritara 11. október 2003 um fjarnám í læknaritun.
Í dag er hægt að stunda nám í læknaritun á þrjá vegu:
- Fullt nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla sem tekur 4 annir með verklega náminu.
- Fjarnám við Fjölbrautarskólann í Ármúla á hraða viðkomandi.
- Fjarnám við Fjölbrautarskólann í Ármúla og Verkmenntaskólann á Akureyri þ.e. teknir eru flestir áfangar innan brautarinnar í fjarnámi frá VMA en áfangar sem er sérsniðnir læknaritunarbrautinni s.s. LÆR 105, 205 og 306 teknir í fjarnámi frá FÁ.
Fjarnám skapar stórkostlegt svigrúm og frelsi til náms. Nú getur hver sem er í heiminum sest við tölvuna og tekið allt bóklegt nám t.d. í læknaritun í fjarnámi á sínum hraða og þegar hann/hún vill. Þetta hlýtur því að skapa tækifæri fyrir konur og karla alls staðar af á landinu til að stökkva til ekki síst fyrir þá einstaklinga sem hafa hug á slíku eða eru starfandi sem ritarar lækna.
Áður en haldið er í fjarnám eru nokkrir þættir sem vert er að athuga. Sérstaklega er mikilvægt að skoða kostnaðarhlið mála og bera saman verð skólanna.
Í fyrirlestrinum mínum notaði ég glærusýningu sem þið getið smellt á til að skoða nánar.
Þar má sjá verðmuninn milli skólanna sem og dæmi um læknaritaranema sem kýs að taka námslán til að fjármagna nám sitt. Getið er heimilda og hvet ég fólk til að skoða viðkomandi síður.
Allt er breytingum undirorpið og ekki er loku fyrir það skotið að verðskrár og reglur skólanna breytist. Hins vegar ber að taka skýrt fram að undirrituð tekur annan skólann ekki fram fyrir hinn á neinn hátt nema þegar litið er til kostnaðarhlið mála.
Læknaritunarbraut í Heilbrigðisskólanum í Ármúla er til fyrirmyndar hvað námsfyrirkomulag og kennslu varðar. Öllum erindum og athugasemdum sem undirrituð hefur sent starfsfólki Fjölbrautarskólans í Ármúla hefur verið svarað á skjótan og góðan hátt. Þannig sýnir skólinn nemendum sínum alúð og skilning.
Gaman væri að heyra frá ykkur og hvet ég alla til að senda inn athugasemdir eða nýjar upplýsingar sem þið hafið yfir að búa varðandi málið.
Hildur Hauksdóttir
hildurhauks@fsa.is












