Fréttir Læknaritara
16. febrúar 2012
Stjórn og nefndir FÍL
Það vantar áhugasamar og öflugar konur í stjórn FÍL og eftirtaldar nefndir:
Uppstillinganefnd
Laga- og siðanefnd
Fræðslu- og skemmtinefnd
Ritnefnd
Kjaranefnd
Áhugasamir hafi samband við Ragnheiði Jónasdóttur eða Sigrúnu Hjartardóttur í uppstillinganefnd.
16. febrúar 2012
Aðalfundur FÍL
Aðalfundur FÍL verður haldinn laugardaginn 28. apríl nk.
Takið daginn frá!
27. janúar 2012
Kaffihúsafundur 02.02.2012
Kaffihúsafundur verður fimmtudaginn 2. febrúar nk., upp úr kl. 16 á Café Bleu í Kringlunni. Læknaritarar fá 10% afslátt af veitingum.
Vonumst til að sjá ykkur sem flestar!
Stjórnin
27. janúar 2012
Félagsfundur 06.02.2012 kl. 18
Félagsfundur verður haldinn þann 6. febrúar nk. kl. 18 á 1. hæð í BSRB húsinu, Grettisgötu 89.
11. janúar 2012
Kaffihúsafundur
Fyrsti kaffihúsafundur ársins verður á morgun, fimmtudaginn 12. janúar, upp úr kl. 16 á Café Bleu í Kringlunni.
Vonumst til að sjá ykkur sem flestar!
Stjórnin
24. desember 2011
Gleðileg jól!
|
Félag íslenskra læknaritara óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs. Þökkum ánægjulegar stundir á árinu sem er að líða og vonum að þær verði enn fleiri á nýju ári. Með jólakveðju, Stjórn FÍL |
8. desember 2011
Munið jólafundinn í dag!
Minnum á jólakaffihúsafundinn okkar í dag. Heitt súkkulaði og smákökur í boði FÍL. Leynigestur mætir á svæðið. Mæting upp úr kl. 16, 2. hæð í BSRB húsinu.
2. desember 2011
Jólakaffihúsafundur 08.12.2011
Jólakaffihúsafundur verður fimmtudaginn 8. des. upp úr kl. 16 á 2. hæð í BSRB húsinu við Grettisgötu.
Leynigestur. Heitt súkkulaði og smákökur í boði FÍL.
Vonumst til að sjá ykkur sem flestar!
Stjórnin
30. nóvember 2011
Jólafundi aflýst
Vegna lélegrar þátttöku hefur jólafundinum, sem átti að vera föstudaginn 2. des. n.k., verið aflýst.
Fræðslu og skemmtinefnd FÍL
24. nóvember 2011
Jólafundur FÍL
![]() |
Jólafundur FÍL verður föstudaginn 02.12.2011 kl. 18:00 á 1. hæð í BSRB húsinu. Boðið verður upp á skemmtiatriði og góðan mat, sjá auglýsingu. Þú mátt bjóða vini/vinkonu með þér. |












